29.11.1951
Efri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í C-deild Alþingistíðinda. (3008)
130. mál, orkuver og orkuveitur
Landbrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Ég get nú ekki gefið svör við spurningum hv. þm. Barð. nú sem stendur, en ég skal taka þetta atriði til yfirvegunar.
Það er rétt, sem hv. þm. Barð. tók fram, að þó að fagmenn á þessu sviði haldi því flestir fram, að stórar rafstöðvar séu hin eðlilega lausn málsins, þar sem þær eru sennilega öruggari þar, sem vel stendur á um virkjun og vel stendur á um að nýta rafmagnið, þá er því ekki að leyna, að við athugun þessara mála kemur í ljós, að litlu stöðvarnar eru engu síður hagkvæmar fyrir fáeina bæi. Rekur maður sig á það hvað eftir annað, að svo er. Þess vegna er það, að ég er fús til að taka þetta mál til yfirvegunar, án þess að eyða tíma í að ræða það frekar.