10.01.1952
Efri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í C-deild Alþingistíðinda. (3032)
152. mál, húsrými fyrir geðsjúkt fólk
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um þetta mál, en tilefni þess, að ég kvaddi mér hér hljóðs, var það, að síðasti ræðumaður upplýsti, að n. væri ekki kunnugt um, hve margir sjúklingar það væru árlega, sem Kleppur þyrfti að taka við samkvæmt ákvæðum þessa frv. En í sambandi við þetta er skiljanlegt, að upplýsingar atvmrn. séu takmarkaðar, þar sem þær skýrslur, sem það fær um þetta mál, eru ekki fullkomnar. En það hlýtur að liggja fyrir hjá yfirlækninum á Kleppi, Helga Tómassyni, hve hælið hefur þurft að taka við mörgum slíkum óðum mönnum undanfarin ár, og ætti n. að taka það til athugunar, svo að hægt sé að gera sér hugmynd um, hve mikið pláss þarf undir þessa sjúklinga í framtíðinni. Það hlýtur að vera hægt að fá upplýsingar um þetta hjá yfirlækninum á Kleppi, hve hælið hefur þurft að taka við mörgum sjúklingum með slíka geðveiki sem hér er um að ræða, t. d. undanfarin 5–6 ár, þótt þessar upplýsingar liggi ekki fyrir í atvmrn. — Þessu vildi ég beina til nefndarinnar.