12.12.1951
Sameinað þing: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (3145)

106. mál, jöfnunarverð á olíum og bensíni

Sigurður Ágústsson:

Herra forseti. Ég þakka allshn. fyrir greiða afgreiðslu þessa máls. Eins og getið hefur verið, er það meginefni þessarar till., að sama verð verði á olíum og benzíni um land allt. Þetta eru atriði, sem til þess eru fallin að rannsaka nánar en gert hefur verið til þessa.