08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (3150)

80. mál, tunnuverksmiðja ríkisins

Flm. (Jónas Rafnar):

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um efni þessarar till., enda er gerð grein fyrir efni hennar í grg., og þar sem orðið er fámennt í salnum, sé ég ekki ástæðu til að vera að lengja umr. enn. — Ég álít nauðsynlegt, að nefnd fjalli um efni þessarar till., og vil leyfa mér að fara fram á, að umr. verði frestað og málinu vísað til fjvn.