16.01.1952
Sameinað þing: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (3192)
52. mál, rannsókn virkjunarskilyrða á Vestfjörðum
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. n. fyrir afgreiðslu þessa máls og lýsa yfir því fyrir hönd okkar flm., að við getum fallizt á þá orðalagsbreyt., sem n. leggur til. Ég vil láta þá von í ljós, að nú rætist úr þessu þýðingarmikla máli og að innan skamms verði hafizt handa um raunhæfar framkvæmdir.