15.11.1951
Sameinað þing: 15. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (3205)

51. mál, mótvirðissjóður

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þar sem mér er kunnugt um, að forseti vill koma þessu máli fljótt til nefndar og hv. flm. vill það líka, skal ég verða við þeirri ósk, og mun ég því ekki eyða miklum tíma við þessar umr. Ætla ég að geyma að ræða þetta, þar til við síðari umr. málsins.