14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í D-deild Alþingistíðinda. (3218)

51. mál, mótvirðissjóður

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég vil ítreka það, sem ég sagði áðan, að ef ætlunin með þessari þáltill. er, að hún sé bindandi um fjárútlát, þá verður að skipta um meðferð málsins og hafa tvær umr. um það. Hér er um að ræða hluta af ríkissjóði, og það skiptir ekki minna máli, hvernig ráðstafað er mörgum millj. kr., en nokkrum þúsundum. Ég vil ekki skipta mér af efni málsins, og ég viðurkenni þörfina á fé í þessu skyni, en ef menn eru farnir að tala um, að þetta eigi að vera bundið með löggjöf, þá verður málið að fá aðra meðferð hér á Alþ.