09.01.1952
Sameinað þing: 30. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 277 í D-deild Alþingistíðinda. (3456)
104. mál, vegarstæði milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur
Flm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég hef, ásamt tveim öðrum hv. þm., leyft mér að bera fram á þskj. 196 till. til þál. um að fela ríkisstj. að láta fram fara svo fljótt sem auðið er nákvæma rannsókn á því, hvar hagkvæmast sé að leggja akveg milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Vegasamband milli Ólafsfjarðar og þjóðvegakerfis landsins er um Lágheiði, og má þaðan komast til Skagafjarðar og þaðan til Akureyrar. Samband þetta er að vísu nokkur bót, en það getur ekki fullnægt þörfum Ólafsfjarðar, vegna þess að þörfin er langmest fyrir vegasamband við Akureyri og sveitirnar fyrir botni Eyjafjarðar gegnum Dalvík. Það hefur verið athugað með vegalagningu milli Ólafsfjarðar og vegakerfis Eyjafjarðar, en á þeirri leið eru ýmsir örðugleikar, því að það er yfir fjöll að fara, og það hefur einnig komið til athugunar nú, að hugsanlegt sé að leggja veg fyrir Ólafsfjarðarmúla. Það hefur þótt ófýsilegt vegarstæði, þar sem þarna eru miklir klettar, en slíkar leiðir er nú farið að sprengja, eins og t. d. leiðina milli Bolungavíkur og Ísafjarðar.
Tilætlun okkar með þessari þáltill. er sú, að látin verði fara fram athugun á því, hvort ekki séu tök á því að leggja þennan veg fyrir Múlann eða þá annars staðar. En þarna hefur verið farið yfir á jeppa, en þó má vera, að þarna sé örðugt að leggja veg fyrir bifreiðar almennt. Þetta er aðalleiðin, sem til greina kemur, og mikilvægt að athuga, hvaða leið er tiltækilegust, því að það eru allar líkur til þess, að þarna séu möguleikar á að leggja veginn, og þörfin er þarna brýn hjá þessum stöðum, sem mestan tíma ársins hafa ekki aðra leið opna með flutninga sína til og frá en sjóinn, en þörfin á að hafa flutningasamband við Akureyri og aðrar sveitir Eyjafjarðar er mikil. Ólafsfirðingar eru ekki sjálfum sér nægir með mjólkurframleiðslu, og svo mun um fleiri kaupstaði og kauptún þar um slóðir, svo sem Siglufjörð. En vegur þarna mundi mjög stytta flutningaleiðina til Siglufjarðar.
Ég vil vænta þess, að hv. alþm. taki þessari till. vel og sú n., sem fær þetta mál til athugunar, og ég legg til, að hún fari til fjvn., þar sem má vera, að einhver kostnaður verði af því að láta þessa athugun fara fram. Ég geri ráð fyrir, að vegamálastjóri láti þessa athugun á vegarstæðinu fara fram, og ætti það ekki að hafa mikinn aukakostnað í för með sér.
Ég mæli svo með því, að till. fari til fjvn. til frekari athugunar, því að það eiga víst að vera tvær umr. um hana.