16.01.1952
Sameinað þing: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 288 í D-deild Alþingistíðinda. (3489)
137. mál, landhelgisgæsla á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes
Sigurður Ágústsson:
Herra forseti. Ég get ekki sagt annað en ég undrast stórlega afstöðu hæstv. ráðh. í þessu máli, og virðist svo vera, sem ekki fari saman vilji þeirra í þessu efni og skoðun hv. Alþ. Á síðasta þingi var samþ. þál. um landhelgisgæzluna á Breiðafirði og við Snæfellsnes, þar sem lögð var áherzla á, að þessi svæði fengju nauðsynlega gæzlu, og mælti hv. fjvn. með þeirri till. Henni var þó ekki framfylgt betur en það, að gæzluskip voru aðeins höfð tvo mánuði á þessum slóðum. En ég álít, að með þessari samþykkt hafi Alþ. kveðið upp dóm um það, að það væri þörf á landhelgisgæzlu við Snæfellsnes og á Breiðafirði. Þess vegna var það, að ég skrifaði bréf til Pálma Loftssonar, þar sem ég skoraði á hann að taka upp í sína áætlun til fjmrh. kostnað við skipagæzlu við Snæfellsnes og á Breiðafirði. Ég fæ því ekki skilið, að sú mótspyrna, sem kemur hér fram við þessa till., sé runnin frá Pálma Loftssyni, og Alþ. hefur þegar sýnt vilja sinn í þessu máli.
Ég geri ekki mikið með það, sem hæstv. fjmrh. sagði, að það færi ekki vel á því að ræða þetta mál nú, eftir að fjárlög hefðu verið samþ. Ég sé ekki annað en hæstv. ríkisstj. komi sjálf fram með þáltill. nú rétt þegar þingi er að ljúka og fjárlög hafa verið afgreidd, um heimild til að verja fé, eða 1½ millj. kr., til byggingar hraðfrystihúss á Siglufirði, svo að ég tel, að ekki sé hægt að ásaka okkur þm. fyrir það, þótt við komum nú fram með till. sem þessa og komum þannig á framfæri óskum frá okkar kjósendum. Þessu máli til áréttingar vil ég nefna það, að mér hefur borizt bréf frá 72 sjómönnum í Grundarfirði, þar sem þeir leggja áherzlu á, að þessum óskum um landhelgisgæzlu við Snæfellsnes og á Breiðafirði verði fullnægt.