31.10.1951
Sameinað þing: 9. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í D-deild Alþingistíðinda. (3539)

180. mál, olíu- og bensínverð

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vil endurtaka það, sem ég sagði áðan, að ég skil ekki þáltill. sem beina og ótvíræða fyrirskipun frá Alþ. um, að það ætti að koma jöfnunarverði á olíuna, heldur nánast svo, að rannsaka skuli, hvort hægt væri að koma þessu fyrirkomulagi við. Ef það væri eindreginn vilji Alþ. að koma þessu jöfnunarverði á, yrði það að koma fram á skýrari hátt.