21.11.1951
Sameinað þing: 16. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í D-deild Alþingistíðinda. (3596)

184. mál, mannahald við vöruskömmtun og verðlagseftirlit

Fyrirspyrjandi (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þessar upplýsingar, sem hann hefur gefið. Og ég vil í sambandi við þetta mál beina því til hans, hvort hann vildi ekki taka sérstaklega til athugunar með vöruskömmtunina, hvort ekki væri hægt að koma því máli betur fyrir, t. d. á þann hátt, sem ég nefndi í minni fyrri ræðu.