21.11.1951
Sameinað þing: 16. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í D-deild Alþingistíðinda. (3599)
184. mál, mannahald við vöruskömmtun og verðlagseftirlit
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Út af fyrirspurn hv. 3. landsk. þm. skal ég skýra frá því, að verðgæzlustjóri hefur fyrirmæli um það að gera slíka athugun á verðlagi, sem hv. þm. gat um. Það er meðal annars ástæðan fyrir því, að ekki hefur verið fækkað meira starfsfólki á verðgæzluskrifstofunni en raun er á orðin. Þessi athugun, sem ráðgert var að færi fram, um leið og verðlagseftirlitið var afnumið af ýmsum vörutegundum, er sjálfsagt talsvert mikið verk, ekki sízt skrifstofuverk, og þess vegna þarf að hafa nokkuð marga menn enn á þeirri skrifstofu, meðan hún sinnir þessum störfum. Það er verið að semja skýrslur nú fyrir októbermánuð. Ein skýrsla er komin, en það er von á fleiri nú bráðlega. Og þegar þær skýrslur liggja fyrir, verður sá árangur, sem þá fæst, birtur opinberlega.