04.01.1952
Efri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (3654)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Ég skal ekki segja, hvort hægt verður að leggja málið fyrir þetta þing, sem nú situr. Nú er um að gera, að búið verði nægilega vel að öllum frágangi við undirbúning þessa máls, þannig að það geti staðizt, sem gert verður. Þetta mál er að sjálfsögðu skjótt til vinsælda, en það er um að gera, að svo verði frá málinu gengið, að ákvarðanir okkar standist.