26.11.1951
Neðri deild: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (367)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forseti (SB):

Það hefur borizt ósk um, að þessari umr. verði frestað. Ég mun verða við þeirri ósk, en hins vegar vil ég beina þeim tilmælum til allra þm., að þeir geri ekki mikið að því að biðja um frestun mála, því að það kann að hafa það í för með sér, að þau sömu mál nái ekki fram að ganga á þessu þingi.