14.01.1952
Neðri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1429 í B-deild Alþingistíðinda. (3682)

Varamenn taka þingsæti

forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá hv. 2. þm. Reykv., Einari Olgeirssyni:

„Reykjavík, 14. jan. 1952.

Lúðvík Jósefsson, 2. landsk. þm., hefur símað mér, að hann vegna annríkis heima fyrir næstu vikur muni ekki geta komið til þings, og falið mér að fara fram á, með skírskotun til 144. gr. laga um kosningar til Alþingis, að varamaður hans, Magnús Kjartansson ritstjóri, taki sæti hans á Alþingi.

Einar Olgeirsson.“

Samkvæmt þessari ósk tekur varamaður sá, er í bréfinu greinir, sæti 2. landsk. þm.