20.12.1951
Neðri deild: 52. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1432 í B-deild Alþingistíðinda. (3692)

Þinghlé

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér, — og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn hv. þd., — að þakka forseta fyrir góðar jólaóskir í okkar garð og vil leyfa mér að óska honum gleðilegra jóla og vænti þess að sjá hann hér heilan á húfi, þegar þing hefst aftur eftir nýár. Vil ég biðja hv. þm. að rísa úr sætum til að árétta árnaðaróskir mínar til hæstv. forseta. — [Þdm. risu úr sætum.]