24.01.1952
Sameinað þing: 37. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (3705)

Þinglausnir

Einar Olgeirsson:

Ég vil leyfa mér — og mæli ég þar fyrir munn allra þm. — að þakka okkar forseta fyrir gott samstarf og góða fundarstjórn, og óska ég að sjá hann heilan á húfi í haust. Svo óska ég honum góðrar heimferðar og heimkomu og bið hv. þm. að taka undir árnaðaróskir honum til handa með því að risa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]