01.10.1951
Sameinað þing: 1. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (3710)
Varamaður tekur þingsæti o. fl.
(JörB):
Ég vil leyfa mér að lesa hér bréf, sem forseta sameinaðs Alþingis hafa borizt frá tveimur þingmönnum, þeim Eiríki Einarssyni og Finni Jónssyni. Þá er fyrst bréf frá Eiríki Einarssyni, 2. þm. Árn.:
„Hér með tilkynnist yður, að ég mun eigi taka þingsetu á Alþingi því, er nú kemur saman, vegna vanheilsu, er ég á nú við að búa. Hef ég því beðið varaþingmann minn, herra Sigurð Óla Ólafsson, að taka þar sæti mitt fyrst um sinn.
Selfossi, 30. sept. 1951.
Eiríkur Einarsson.“
Þá er hér bréf frá Finni Jónssyni, þm. Ísaf.: „Reykjavík, 1. okt. 1951.
Vegna sjúkleika get ég ekki að þessu sinni komið til setningar Alþingis í dag og sennilega ekki til þingfunda fyrst um sinn.
Finnur Jónsson,
alþingismaður Ísafjarðarkaupstaðar.“
Aldursforseti kvaddi sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Jónas Rafnar, þm. Ak., og Skúla Guðmundsson, þm. V-Húnv.
Rannsókn kjörbréfs.
Þessu næst skiptust þm. í kjördeildir, og urðu í
1. kjördeild:
AE, ÁÁ, BÓ, EmJ, HV, HG, HermJ, KK, KS, LJóh, PZ, SÁ, SÓÓ, SkG, StSt, StgrA, VH, ÞÞ.
2. kjördeild:
ÁkJ, ÁB, ÁS, BBen, EystJ, FJ, GG, GJ, HÁ, HelgJ, IngJ, JóhH, JG, LJós, PO, RÞ, StgrSt.
3. kjördeild:
BSt, BrB, EOl, FRV, GTh, GÞG, JJós, JPálm, JS, JÁ, JR, JörB, ÓTh, PÞ, SB, SG, StJSt.
Fyrir lá að rannsaka kjörbréf Andrésar Eyjólfssonar, þm. Mýr., og fékk 2. kjördeild bréfið til athugunar, svo sem þingsköp mæla fyrir.
Varð nú fundarhlé, er kjördeildin gekk út úr salnum til starfa sinna, en að rannsókn lokinni var fundinum fram haldið.
ATKVGR.
Að till. 2. kjördeildar var kjörbréf Andrésar Eyjólfssonar samþ. með 34 shlj. atkv.