06.12.1951
Efri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í B-deild Alþingistíðinda. (379)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Ég vil taka fram út af ræðu hv. þm. Barð., að ég reikna með, að það séu menn með fullu viti, sem gera samninga þessa. Skipið var keypt af seljanda í því ástandi, sem kaupendur vildu. Hins vegar er mér ljóst, að slíkt skip verður erfiðara í rekstri en nýtt skip, og ef rekstur þess bregzt, þá mun það koma til meðferðar hér sem önnur slík mál.