14.12.1951
Efri deild: 43. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (387)

6. mál, togarakaup ríkisins

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem hæstv. forsrh. sagði við 2. umr. Ég vildi skýra frá, að ég hef fengið þau gögn, sem hann talaði um, og fæ ekki séð annað en að þau staðfesti það, sem ég sagði. Að öðru leyti skal ég ekki ræða þetta mál.