17.12.1951
Efri deild: 45. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (417)

117. mál, tekjuskattsviðauki, lækkun skatts af lágtekjum o. fl.

Jóhann Jósefsson:

Það mun að vísu vera svo, að fyrir liggi þáltill. í Sþ. um endurskoðun, en mér finnst, að hæstv. ráðh. ætti að vera nokkuð bundinn af vilja þingsins um þetta, og þar sem þessari deild gefst tækifæri til þess að láta uppi sína skoðun, segi ég já.