18.10.1951
Neðri deild: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í B-deild Alþingistíðinda. (425)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það er sama að segja um þetta frv. og hið næsta á undan, það fjallar um að framlengja ákvæði um tekjuöflun, sem sett voru með lögum um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna, III kafla laga nr. 100 frá 1948. Leyfi ég mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjhn. að lokinni þessari umr.