11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (454)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Magnús Jónsson:

Ég geri ráð fyrir, eins og fjárl. liggja fyrir, að það geti orðið erfitt fyrir ríkissjóð að missa nokkuð af tekjum sínum. En þar sem ég tel nauðsyn til bera, að einhverjar virkar ráðstafanir verði gerðar til þess að létta undir með bæjarfélögunum, þá segi ég já.