11.12.1951
Neðri deild: 41. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í B-deild Alþingistíðinda. (455)

60. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Ég vil leyfa mér að taka það fram, að samkvæmt því, sem ég bezt veit um afgreiðslu fjárl. og möguleika til að samþ. þau þannig, að afgreiðslan verði nokkurn veginn örugg, þá sé ég mér alls ekki fært að taka við till. eins og þessari og segi því nei.