18.12.1951
Efri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (536)

139. mál, almannatryggingar

Forseti (BSt):

Mér hefur borizt svo hljóðandi skrifleg brtt., það er varatill. frá meiri hluta heilbr.- og félmn.: „Við 2. gr. Aftan við greinina bætist: Iðgjöld vegna lögskráðra sjómanna samkv. 112. gr. laganna skulu innheimt með álagi samkv. kaupgjaldsvísitölu janúarmánaðar, þar til vísitöluálag ársins hefur verið ákveðið.“ Þessi till. er skrifleg og of seint fram komin og þarf því afbrigði.