29.11.1951
Sameinað þing: 19. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (572)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Forseti (JPálm):

Áður en gengið er til atkv., þarf ég að fá afbrigði varðandi eldhúsdagsumr., sem samkvæmt þingsköpum eiga að fara fram í lok þessarar umr. En það varð samkomulag um það milli mín sem forseta og formanna þingfl., að eldhúsdagsumr. verði í vikunni frá 9. til 16. des., en nánar ákveðið síðar, og helzt þá í byrjun 3. umr. Fyrir þessum ákvörðunum vildi ég leita samþykktar á afbrigðum.