05.12.1951
Sameinað þing: 22. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (625)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Ég vil ekki segja blátt og kalt nei við því, að ríkissjóður standi skil á því, sem honum ber að greiða. En þar eð bv. þm. Barð. hefur upplýst, að í fyrsta lagi sé ekki farið rétt með tölur hér, sem ég skal engan dóm á leggja, og í öðru lagi, að hæstv. ríkisstj. muni leggja fram till., sem miði í þá átt að greiða þessar skuldir, get ég ekki sagt annað en nei við þessari till.