20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 620 í B-deild Alþingistíðinda. (688)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

Jörundur Brynjólfsson:

Ég tel, að þessi menningarstofnun hafi fulla þörf fyrir þessa fjárveitingu og að henni hafi ekki verið sinnt sem skyldi hér á Alþingi, en samkv. upplýsingum frá hv. frsm. fjvn. á Alþ. þó ekki þar eitt sök á. — Eigi að síður er hér mikil þörf lagfæringar. — Reyndar má telja samkv. rökstuðningi hv. 3. landsk. þm. um fjárveitingu til Laugarvatnsskólans, að ekki sé nægilegt fé til að leggja í þetta, en þrátt fyrir þetta, sem ég að vísu viðurkenni ekki, þá segi ég já.