20.12.1951
Sameinað þing: 27. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 621 í B-deild Alþingistíðinda. (695)

1. mál, fjárlög fyrir árið 1952

atvmrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Ég vildi aðeins beina því til flm. þessarar till., að þeir tækju hana til baka. Ríkisstj. mun afla sér heimildar til þess að greiða þeim mönnum, sem við þessar bátasmíðar fengust, bætur fyrir tap þeirra, og í trausti þess, að þetta verði gert, vil ég biðja þá um að taka þessa till. til baka.