01.11.1951
Neðri deild: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

5. mál, innheimta skemtanaskatt með viðauka

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Það er víst ekki enn búið að útbýta nál. En fjhn. hefur athugað þetta mál og borið það saman við lög, sem fjalla um sama efni og giltu fyrir árið í fyrra, og er frv. alveg samhljóða þeim lögum. Og nm. eru sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir, þar sem í því felst aðeins framlenging á lögum og er nákvæmlega eins og það fyrirkomulag, sem í gildi er í ár og mun hafa gilt lengi áður.