04.01.1952
Efri deild: 54. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (797)
19. mál, áfengislög
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Ég sé nú ekki ástæðu til að ræða mikið um þetta, en vil þó segja nokkur orð um þá till., sem hér er komin fram. Ég get að sjálfsögðu ekkert um það sagt, hvað meiri hl. n. segir um þessa brtt., en ef hv. tillögumaður vill taka hana aftur til 3. umr., skal ég ræða um hana við n. — Mér þykir ákaflega eðlilegt, að þessi till. er komin fram, og liggur fyrir um það fullkomin yfirlýsing frá mér og öðrum nm., að þessa framleiðslu megi ekki selja, nema greiddur sé af henni sami tollur og af annarri ölframleiðslu í landinu, og get ég því lýst yfir fyrir mína parta, að ég get fallizt á till., en get ekki sagt um það fyrir hönd n., nema haldinn verði nefndarfundur. Ég get líka látið mér nægja yfirlýsingu hæstv. ráðh., en ef hv. þd. telur það heppilegra, hef ég ekki á móti því, að þessi till. verði samþ. — Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða um þetta meira.
Ég sé ekki ástæðu til að þvæla mikið við hv. 6. landsk. Hann hefur belgt sig hér upp og rangfært, að hér sé um stórkostlegt fjárhagsmál að ræða. Ég veit ekki, hver hefur haldið því fram, en honum er orðið svo tamt að tvöfalda allar tölur, eins og hann t.d. gerði í sambandi við umr. um fjárl., svo að það er ekki furða, þó að hann haldi þessari stefnu sinni áfram hér nú á hinu nýja ári. Hvorki ég né hæstv. dómsmrh. höfum minnzt hér neitt á það, hve stórkostleg hagnaðarvon þetta væri fyrir ríkissjóð eða bæjarfélögin; það er hugmynd, sem hefur komið fram hjá hv. þm. sjálfum, en ekki neinum öðrum. Svo hefur hann hér í frammi ósæmilegt orðbragð, sem hæstv. forseti raunverulega hefði átt að hringja á hann fyrir. Hér í ekki meira alvörumáli belgir hann sig upp og reynir að hafa á móti þessu máli fyrir pólitíska hagsmuni, en vantar allan grundvöll til þess að geta flutt rök fyrir sínu máli. Þetta mál er alveg einangrað. Hvað hefur skeð síðan heimildarl. voru sett 1941, annað en það, að þá mátti selja setuliðinu, en nú má selja varnarliðinu? Vill ekki hv. þm. svara því? Hvað er svo þessi hv. þm. að ræða um þessi mál? Hvaða hugmynd er það, að þetta verði einhver voði fyrir íslenzku þjóðina? Slíkt er ekkert annað en bull í sambandi við málið.
Hv. þm. vildi gera ákaflega mikið úr því, að ég hefði sagt, að minnzt hafi verið á það af þm., að rétt væri að setja inn í þetta frv. heimild til að selja ölið innanlands. Það hefur aldrei verið minnzt á það við n. sem slíka, en þm. er kunnugt um það eins og mér, að til eru menn í d., sem telja það ekki neina goðgá, að slíkt öl væri selt innanlands, en það kemur bara ekkert við afgreiðslu þessa máls, og hefur enginn blandað þessu saman nema hann.
Svo spyr hann, hvað þetta þýði mikla fjölgun verkamanna. Ég get svarað því. Það fer eingöngu eftir því, hve mikið magn varnarliðið vill nota, og ágóði ríkissjóðs fer líka eftir því. Ef ekkert öl er bruggað, er uppfyllt ósk þessa ha. þm., en líka ósk hans um það, að hvorki ríki né bær hafi tekjur af því og verkamenn ekki heldur tekjur af því. En hann vill, að það komist bara ekki upp, en í hjarta sínu væri hann ánægður yfir því, ef ekkert öl væri bruggað og bæjarsjóður fengi engar tekjur, verkamenn engar tekjur og ríkissjóður engar tekjur.
Og ef mótstaða hans er slík, að hann geti fengið meiri hl. Alþ. til að ganga inn á slíkt, fær hann óskir sínar uppfylltar í sambandi við málið með því að frv. verður fellt.
Hv. þm. gat einnig um, að það væri ekkert styrkleikahámark í sambandi við bruggunina. Það er alveg rétt, að það er ekkert hámark, enda kemur það ekkert málinu við, þegar ekki á að selja ölið innanlands. En ég get sagt honum, að það er til styrkleikahámark á vinanda um það, hvað hægt er að hafa ölið sterkt til þess að vera undir þeim flokki að heita öl, og upp í það hámark geta þeir náttúrlega farið.
Ég sé ekki ástæðu til að ræða um þetta mál meir, það liggur alveg ljóst fyrir. Ég hef ekki neina löngun til að þrátta við hv. þm. um það meir. Hann reynir að blanda hér inn í allt öðrum málum, en hefur ekki tekizt frekar en endranær að halda sig að réttum tölum, því að sem sagt, þá hefur þessi freisting komið yfir hann áður, þar sem komið hefur í ljós, að hann hefur tvöfaldað tölur hér í Alþingi.