07.01.1952
Efri deild: 55. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (804)

19. mál, áfengislög

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Að efninu til er ekkert við þessa brtt. að athuga. Að vísu tel ég hana óþarfa eftir þær upplýsingar, sem hér hafa verið gefnar. En mér líkar ekki orðalag þessarar brtt. og vildi því gjarnan eiga þess kost að víkja því lítillega við, ef ég mætti biðja um frest í því skyni.

Umr. frestað um stund, en var fram haldið síðar á sama fundi.