14.01.1952
Neðri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (812)

19. mál, áfengislög

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Herra forseti. Meiri hl. allshn. mælir með því, að þetta frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir; einn nm. taldi sig andvigan málinu. — Þetta frv. ber með sér, hvað um er að ræða, og var gerð grein fyrir aðalefni þess við 1. umr. af þeim ráðh., sem að því stendur. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið frekar.