23.01.1953
Neðri deild: 56. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)

42. mál, verðlag

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Þetta var alveg rétt hjá hv. þm. A-Húnv. Ég miðaði við frv. eins og því var útbýtt upphaflega, en í Ed. hefur greinatalan breytzt, svo að ég tók till. hans eins og hún væri stíluð við upphaflega frv., en hún er stíluð við frv. eins og það er orðið eftir 3. umr. í Ed., svo að þessar síðustu athugasemdir voru að þessu leyti á misskilningi byggðar.