29.11.1952
Efri deild: 32. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1056 í B-deild Alþingistíðinda. (1164)

18. mál, bæjanöfn o. fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Vegna þess að það var minnzt hér áðan á hliðstætt mál, brtt., sem ég flutti þá í sambandi við breyt. á skattamálum, og herra forseti úrskurðaði þá eins og nú, að sú brtt. skyldi borin upp, en gat þess um leið, að ef brtt. yrði samþ., þá mundi hann síðar úrskurða, hvort málið ætti að teljast sem nýtt mál eða ekki, þá vil ég benda á, að hæstv. forseti hefur hér haft á sama hátt, að bera þetta undir d., þótt hann hins vegar hafi engu lýst yfir um það, hvort þetta skuli teljast nýtt mál vegna þeirra breyt., sem á yrðu gerðar, ef till. verður samþ.