05.02.1953
Neðri deild: 68. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)

18. mál, bæjanöfn o. fl.

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. til l. um bæjanöfn o.fl. var lagt fyrir þessa hv. d. á öndverðu þessu þingi. Í hv. Ed. var málinu gerbreytt, og hefur það legið um hríð hjá menntmn. til athugunar, eftir að Ed. gekk frá því. N. hefur orðið ásátt um að leggja til, að málið verði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir á þskj. 400.