14.10.1952
Efri deild: 8. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 29 í B-deild Alþingistíðinda. (13)

19. mál, tekjuöflun til íþróttasjóðs

Haraldur Guðmundsson:

Eftir þær upplýsingar, sem hér hafa verið gefnar, þá sé ég ekki ástæðu til að ræða um þessa hlið málsins frekar, en vildi aðeins mælast til þess við hæstv. forseta, að hann hraði ekki svo að taka málið til 3. umr., að mér gæfist ekki tóm til að bera fram brtt., ef ég teldi ástæðu til þess.