24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)

76. mál, búfjártryggingar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil nú leyfa mér að þakka hv. landbn. fyrir það að hafa tekið þetta mál á ný til athugunar. Hún hefur sýnt mér þá velvild að sýna mér brtt., sem lesin var hér upp og er borin fram skrifleg, að aftan við greinina bætist eins og þar stendur, og mun ég fella mig við, að málið verði afgreitt þannig, og mun þar af leiðandi greiða því atkvæði út úr þinginu.