24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1359)
76. mál, búfjártryggingar
Forseti (BSt):
Mér hefur borizt svo hljóðandi skrifleg brtt. við frv. frá landbn.:
„Aftan við 2. gr. bætist ný málsgr., svo hljóðandi:
Umboðsmönnum trygginganna er þó ekki heimilt að taka í tryggingu búfé, sem haft er á þeim stöðum, þar sem ekki verður við komið nauðsynlegu eftirliti með líðan þess, nema stjórn búfjártryggingardeildar leyfi það og þá gegn allt að fimmföldu tryggingargjaldi.“
Þessi till. er skrifleg og of seint fram komin og þarf tvöföld afbrigði, sem ég leita hér með.