11.12.1952
Efri deild: 38. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (1678)

118. mál, hundahald

Forseti (BSt):

Ef brtt. verða hér samþ. á annað borð, þá þarf málið að ganga aftur til hv. Nd., og sé ég þá ekkert á móti því og er það jafnvel betra og tvímælalausara, að það komi fram brtt. (Gripið fram í.) Ég segi það, að ef brtt. verða á annað borð samþ., þá sé ég ekkert á móti því, að það komi fram brtt. um leiðréttingu við 3. umr., í stað þess að skoða það sem leiðréttingu, þar sem það tefur ekki málið.