10.11.1952
Neðri deild: 23. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (1905)
121. mál, sjúkrahús o. fl.
Flm. (Helgi Jónasson):
Herra forseti. Frv. það á þskj. 175, sem ég hef hér leyft mér að flytja, um breyt. á l. um sjúkrahús, fjallar um það, að í 1. gr. laga nr. 33 1945 verði bætt við þá upptalningu, sem fyrir er, einn sjúkrahúsi á Suðurlandsundirlendinu. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um frv. þetta. Það er öllum auðskilið. Eins og nú standa sakir, er ekkert sjúkrahús starfandi á Suðurlandsundirlendinu, en í þeim þremur sýslum, sem þar eiga hlut að máli, búa nú yfir 10 þús. manns, og fer fólki þar fjölgandi nú hin síðustu ár, svo að það er ekki að ófyrirsynju, þótt hafizt verði handa um byggingu sjúkrahúss austan fjalls, enda er það svo, að nú er að verða almennur áhugi hjá fólkinu í þessum héruðum um, að nú verði hafizt handa um byggingu á slíku húsi. Um þörfina á því þarf ég ekki mikið að ræða, hún er öllum augljós. Það hefur oft reynzt illkleift að flytja sjúkt fólk þessa löngu leið yfir fjallvegi til Reykjavíkur og iðulega reynzt erfitt að fá inni á sjúkrahúsum hér fyrr en þá eftir langa bið. — Ég vænti, að hv. Alþ. finni lausn þessa máls og fylgi því hér eftir. Ég vil svo mælast til þess, að frv. að lokinni þessari umr. verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.