15.12.1952
Neðri deild: 40. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1419 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

126. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég tel, að þessi till. sé alveg óþörf, vegna þess að varðandi þær lánsheimildir, sem eru taldar hér upp, er þegar búið að ákveða að taka lán til þeirra framkvæmda, svo framarlega sem þau kunna að fást, og tel ég því, að þau sitji fyrir, þótt engin lagaákvæði væru um þetta sett. En af því að till. er komin fram og ef hún væri felld, þá mætti líta svo á, að það væri ekki vilji Alþingis að taka lánin eftír þeirri röð, sem hér hefur verið minnzt á, segi ég já.