24.11.1952
Efri deild: 30. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 112 í B-deild Alþingistíðinda. (208)
38. mál, verndun fiskimiða landgrunnsins
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Það er ekki af því, að ég hafi neitt annað um afgreiðslu málsins að segja í þessari hv. d. en það að þakka fyrir góða og fljóta afgreiðslu þess, að ég hef kvatt mér hljóðs. En mér þótti réttara, aðeins vegna þess að þetta mál og málið, sem var hér á dagskrá á undan, 1. mál dagskrárinnar, frv. til l. um breyt. á l. um bann gegn botnvörpuveiðum, standa í sambandi við hinar nýju tilraunir okkar til að friða landhelgina, að láta það koma fram í þessari hv. d., að ég hef leyft mér að láta undir höfuð leggjast að flytja um þetta mál hér í d. skýringar, sem að öðru leyti mætti kannske telja eðlilegar, í trausti þess, að hv. þm. hefðu lesið það, sem um þetta mál hefur birzt, og m.a. þær skýringar, sem ég gaf um það, þegar málið var til 1. umr. í hv. Nd. Ég vil aðeins, að þetta komi fram hér í hv. d. við umræðurnar, en sem sagt hef ekki um það fleiri orð, af þessum ástæðum, sem ég greindi. En málið er svo stórt, viðurhlutamikið, umfangsríkt, að mér fannst viðfelldnara, að þessi fáu orð yrðu sögð af minni hendi, um leið og það nú fær afgreiðslu við 2. umr. í þessari hv. deild.