04.02.1953
Efri deild: 67. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)
126. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er búið að vera í Nd. og hefur verið samþ. þar óbreytt og er nú komið hingað til d. Fjhn. d. hefur á fundi sínum athugað þetta mál og var sammála um að leggja til, að það væri samþ. óbreytt.
Það hafa orðið örlög mín, sem var einna harðastur gegn stofnun iðnaðarbanka, — en hann var stofnaður hér á síðasta þingi, — að vera frsm. fyrir n. hönd. Og get ég lýst því yfir, að ég var knúinn til þess með samhljóða atkv. nm. En ég verð að játa það, að ég tel það frá mínu sjónarmiði ekki svo mjög þungan kross, úr því að komið var svo, að banki þessi var samþ. á Alþ. og gerður að l. og stofnað til hans og þar eð fyrirsjáanlegt var, að stofnað var til hans með ekki nægri fyrirhyggju. Fjármagn var lítið, sem hann hafði, eftir því sem l. segja, aðeins allt að hálfri sjöundu millj. kr., sem stofnféð átti að vera. En þar sem nú er þannig ástatt, að það er auðsjáanlegt, að það rekstrarfé nægir hvergi eins og komið er málum, og þar sem þessi stofnun er nú sama sem komin á laggirnar, þá þýðir ekki annað en taka málunum eins og þau liggja fyrir og gera það bezta úr hlutunum og styðja bankann, svo að honum geti vegnað sem skást að mögulegt er. Og ég segi það frá mínum bæjardyrum, að þar sem þetta eru heimildarlög og við treystum því, að sæmileg bankastjórn veljist nú fyrir bankann, þá verður eftir öllum atvíkum og við athugun á því, hve mikil fjárþörf bankans er, að teljast rétt og nauðsynlegt að fylgja þessu frv.
N. er sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, þannig að heimild væri fyrir ríkisstj. að taka allt að 15 millj. kr. að láni eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt og endurlána fé þetta Iðnaðarbanka Íslands h/f með sömu kjörum og það er tekið.