04.02.1953
Neðri deild: 65. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)
214. mál, stofnlánadeild sjávarútvegsins
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég sé það af framsöguræðu hv. frsm. n., að nokkur nauðsyn er á að gefa fyllri upplýsingar um þetta mál, heldur en enn eru komnar fram.
Svo er mál með vexti, að haustið 1950 féllst stjórn stofnlánadeildarinnar á till. núverandi ríkisstj. til úrbóta á aðsteðjandi vanda fyrir nokkurn hluta útgerðarinnar, en ríkisstj. hét því samtímis, að hún skyldi ekki eftir það eiga frumkvæði að breytingu á l. um stofnlánadeild nema með samþykki stofnlánadeildarinnar. Þegar af þessari ástæðu er ekki hægt fyrir ríkisstj. að bera hér fram frv. um annað eða meira en hægt er að ná samkomulagi um við stjórn stofnlánadeildarinnar. Það frv., sem hér liggur fyrir, er það samkomulag, sem náðst hefur. Og ég skal segja það þegar á þessu stigi málsins, að verði gerðar á því breytingar, þá mun ég óska eftir, að frv. verði stöðvað, og tel mig þar tala í nafni ríkisstj.
Varðandi svo þörfina á að gefa togurunum sams konar ívilnun eins og hér er um að ræða til handa vélbátunum, þá má náttúrlega með sanni segja, að ýmsir togaranna hafa þörf fyrir þetta. Þó er nú myndin af ástandinu sú, að það eru ekki nema 9 bátar af 108, sem staðið hafa í skilum með afborgun 1. nóv. 1952. En af 33 togurum eru á sama tíma 18 búnir að greiða, en 15 í vanskilum, og af þessum 15 staðhæfi ég að 4 muni greiða tafalítið, ef að þeim er gengið eða á þá er sótt. Þetta er þess vegna mjög ólík mynd, sem þarna kemur fram af greiðslugetu eða greiðsluvilja — öðru hvoru eða hvoru tveggja — annars vegar togaraflotans og hins vegar bátaflotans.
Það raskar svo ekki því, að einstök skip innan togaraflotans geti verið það illa stödd, að full þörf væri að bæta úr fyrir þeim. Það er bara ekki hægt í þessu sambandi. Ríkisstj. fékk líka til þess sérstaka heimild á fjárlögum. Það má náttúrlega alltaf segja, að sú heimild nægi ekki, og ég þarf ekki um það að efast, að hagur togaranna stendur höllum fæti, sumra mjög höllum, og almennt kannske hallari fæti, en menn gera sér almennt grein fyrir. En í stjórnarfrv. felast þær breytingar, sem samkomulag náðist um við stjórn stofnlánadeildarinnar, og lengra getur stjórnin ekki gengið í málinu. — Ég skora á hv. dm. og sérstaklega alla þá, sem hafa löngun til að styðja bátaflotann, að samþ. þessar till. eins og þær liggja fyrir.