04.02.1953
Neðri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1566 í B-deild Alþingistíðinda. (2211)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Forseti (SB):

Ég vil fyrst vísa á bug þeim ummælum hv. þm., að forsetar séu hér að fremja eitthvert ranglæti gagnvart hv. þm. Ég endurtek það, að þessum hv. þm., sem átti sæti í þeirri n., sem um málið fjallaði, hefur gefizt mjög gott tækifæri til þess að fylgjast með því frá upphafi og gerþekkir þær brtt., sem lagðar hafa verið fram. Ég vil hins vegar koma þar til móts við hv. þm., að hann fái tækifæri til þess að skrifa sínar brtt., og fresta umræðunni um skeið.