05.02.1953
Efri deild: 72. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Forseti (BSt):

Mér hefur borizt svo hljóðandi till. til rökst. dagskrár frá Guðmundi Í. Guðmundssyni, Rannveigu Þorsteinsdóttur, Þorsteini Þorsteinssyni, Finnboga R. Valdimarssyni: [Sjá þskj. 787].

Þá hefur mér borizt brtt. frá Guðmundi Í. Guðmundssyni, svo hljóðandi: [Sjá þskj. 778]. Þessi brtt. er of seint fram komin og verður að teljast skrifleg, þó að hún sé nú máske prentuð. Þarf því tvöföld afbrigði.