05.02.1953
Efri deild: 72. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1573 í B-deild Alþingistíðinda. (2225)

40. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Frsm. 3. minni hl. (Guðmundur Í. Guðmundsson):

Ég vil aðeins mótmæla því hjá hv. þm. Barð., að það felist nokkur ósannindi í þeirri dagskrá, sem ég hef borið hér fram. Þar er sagt frá staðreyndum, sem allar hafa verið rökstuddar, enda hefur hv. þm. Barð. ekki gert tilraun til að mótmæla einu einasta atriði, sem í dagskránni stendur. Hann hefur ekki andmælt dagskránni með einu orði, svo að þetta eru bara fullyrðingar hjá honum út í loftið. — Þessu vildi ég aðeins mótmæla.