03.02.1953
Efri deild: 66. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (2251)
98. mál, Búnaðarbankinn, byggingarsjóður verkamanna, lánadeild smáíbúðarhúsa o.fl.
Brynjólfur Bjarnason:
Það var skýrt frá því í hv. fjhn., að samkomulag væri um það, að þessi mál, þetta frv., sem hér er til umr., og frv. um Iðnaðarbankann, skyldu fylgjast að. Þetta var tilkynnt í n., og okkur nm. var tjáð, að þetta væri samkvæmt viðtali við hæstv. ríkisstj., málin skyldu fylgjast að, þ. e. a. s. bæði málin skyldu verða afgr. af þinginu. Ég tel þess vegna ekki neina ástæðu til þess, að málið verði tekið út af dagskrá, og ég get ekki tekið undir það, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði hér áðan, að nauðsynlegt væri að taka málið út af dagskrá, vegna þess að þetta kæmi flatt upp á þm., þeir væru ekki viðbúnir að taka afstöðu til málsins. Þetta mál hefur legið mjög lengi hér fyrir Alþ., þannig að alþm. hafa haft nægan tíma til þess að taka afstöðu til þess. Og ég vil ekki láta þetta mál fara út úr deildinni án þess að lýsa ánægju minni yfir því, að hv. fjhn. skuli einróma hafa lagt til, að frv. verði samþ.
Efni þessa frv. var flutt sem brtt. við fjárl. af þm. sósíalista. Það var lagt til, að efni frv. yrði tekið upp á fjárl. á heimildagrein. Þetta var fellt. M. a. greiddu atkv. gegn því allir hv. nm. fjhn. þessarar d. nema ég. Og ég tel það mjög ánægjulegt, að þessum meðnm. mínum hefur nú snúizt hugur og eru nú reiðubúnir til þess að ljá góðu máli lið, sem þeir snerust öndverðir gegn í Sþ., þegar fjárl. voru afgr.