08.10.1952
Neðri deild: 5. fundur, 72. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í B-deild Alþingistíðinda. (238)

5. mál, Búnaðarbanki Íslands

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Í umræðum þeim, sem fram fóru hér í hv. Sþ. í gær um fjárlfrv., var gerð nokkur grein fyrir þessu máli og einnig allmikil grg. í aths. við lagafrv. Ég leyfi mér að vísa til þessa og vil ekki endurtaka það, sem áður hefur komið fram um málið, og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og fjhn. að aflokinni þessari umræðu.